Heildarafli Íslands á loðnu aukinn í 196 þúsund tonn

Deila:

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur á grundvelli tillagna Hafrannsóknarstofnunar ákveðið að auka heildarafla íslenskra skipa á loðnu í alls 196.075 þúsund tonn á þessari vertíð. Áætlað heildarverðmæti loðnuaflans er um 17 milljarðar króna.  Heildarkvóti á loðnu í vetur verður 299.000 tonn samkvæmt tillögu Hafrannsóknastofnunar. Ríflega 100.000 tonn koma í hlut annarra landa, Noregs, Færeyja og Grænlands.

Fyrr í vetur hafði íslenskum skipum verið úthlutað rúmum 12 þúsund tonnum þannig að aukningin er rúmlega sextánföld. Samkvæmt lögum 116/2016 um stjórn fiskveiða verður 5,3% aflans úthlutað á skiptimarkaði, alls 10.392 tonnum.

Eins og kunnugt er bentu mælingar á loðnustofninum í september/október 2016 til þess að veiðistofninn á vertíðinni 2016/2017 væri lítill og í samræmi við samþykkta aflareglu var ákveðið að engar veiðar yrðu stundaðar nema mælingar í janúar/febrúar 2017 gæfu tilefni til endurskoðunar.

Mælingar á stærð loðnustofnsins 11.-20. janúar síðastliðinn sýndu að stofninn væri töluvert stærri en mælingar haustsins höfðu bent til og ráðlagði Hafrannsóknastofnun þann 25. janúar að heildaraflamark vertíðarinnar yrði 57 þús. tonn.
Í samvinnu við útgerðir loðnuskipa var ákveðið að mæla að nýju stærð stofnsins og fylgjast með göngum hans fyrir Norður- og Austurlandi. Fóru mælingarnar fram dagana 3. – 11. febrúar á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni ásamt uppsjávarskipinu Polar Amaroq en auk þess kom rs. Bjarni Sæmundsson að rannsókninni í 2 daga.

Rannsóknasvæðið náði yfir Austfjarðamið, Norðurmið sem og Vestfjarðamið. Kynþroska loðna fannst víða á rannsóknasvæðinu og var hún bæði við landgrunnsbrúnina djúpt út af Norður- og Norðausturlandi en einnig var loðnu að finna grunnt s.s. norður af Þistilfirði og Melrakkasléttu en einnig við Skagafjörð. Magn kynþroska loðnu sem mældist var umtalsvert meira en í janúar og meðalþyngd há. Ókynþroska loðna var mest áberandi vestarlega, eða út af Strandagrunni, en austan við Kolbeinseyjarhrygg var mjög lítið af ókynþroska loðnu.

Um 815 þúsund tonn af kynþroska loðnu mældust í mælingunni og mæliskekkja (CV) var metin 0.18. Gildandi aflaregla byggir á því að skilja eftir 150 þúsund tonn til hrygningar með 95% líkum. Tekur aflareglan tillit til óvissumats í mælingunum auk þess sem afrán þorsks, ýsu og ufsa á loðnu er metið. Í samræmi við ofangreinda aflareglu leggur Hafrannsóknastofnun til að heildaraflamark á vertíðinni 2016/2017 verði 299 þúsund tonn.

 

Útbreiðsla loðnu og leiðarlínur rs. Árna Friðrikssonar og uppsjávarskipsins Polar Amaroq dagana 3.-11. febrúar.

Útbreiðsla loðnu og leiðarlínur rs. Árna Friðrikssonar og uppsjávarskipsins Polar Amaroq dagana 3.-11. febrúar.

Deila: