Fiskur í matinn – Norðanfiskur með nýja vörulínu

Deila:

Norðanfiskur, dótturfélag HB Granda, hefur hafið kynningu á nýrri vörulínu sem kallast Fiskur í matinn.

„Íslendingum býðst nú að kaupa ferskan fisk frá Norðanfiski í neytendavænum umbúðum sem auðvelt er að elda. Þær fisktegundir sem verða í boði eru bleikja, gullkarfi, lax, ýsa og þorskur. Vonast er til að með þessu verði hægt að auka neyslu Íslendinga á fiski og um leið auka þekkingu landsmanna á gullkarfa og hversu góður matfiskur hann er,“ segir Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda. Að sögn Vilhjálms tekst Norðanfiskur á við virkilega spennandi verkefni með þessari vörulínu sem breikkar enn vöruúrval fyrirtækisins.

Hægt er að nálgast Fisk í matinn í Bónus og er vörulínan nú þegar komin í verslanir. Samhliða setti Norðanfiskur nýja heimasíðu í loftið fiskurimatinn.is, en þar má finna úrval af girnilegum fiskuppskriftum ásamt fróðleik um þessa góðu matfiska.

Deila: