Ákveðið að ganga til viðræðna við bæjarstjórn Akraness

Deila:

Á fundi trúnaðarmanna HB Granda og forsvarsmanna HB Granda á Akranesi í dag, 29. mars 2017, um áform félagsins að loka botnfiskvinnslu félagsins á Akranesi kom fram fullur vilji hjá forsvarsmönnum HB Granda um að ganga til viðræðna við bæjarstjórn Akraness í samræmi við viljayfirlýsingu hennar frá 28. mars 2017. Reynt verður að ljúka þessum viðræðum sem fyrst. Náist ekki jákvæð niðurstaða þá verður að óbreyttu botnfiskvinnslu HB Granda hætt þann 1. september 2017.

Viljayfirlysing bjarstjornar Akraness til HB Granda_28. mars 2017.pdf

Deila: