Vistvænn Stormur á leið til landsins

Deila:

Nýr línubátur bætist í flota Íslendinga í júní næstkomandi. Þá er Stormur væntanlegur til landsins frá Póllandi. Skipið er nánast nýsmíði, en þó byggð á skrokki sem keyptur var frá Nýfundnalandi og hefur verið í breytingum í G‘Dansk í eitt og hálft ár. Skipið með rafknúna skrúfu, „dísel electric“ og dregur línuna í gegnum síðuna. Hvort tveggja er nýjung í útgerð íslenskra línubáta, en þekkt annars staðar í heiminum. Skipið er í eigu Storm Seafood í Hafnarfirði.

Axel Jónsson, skipstjóri, hefur haft umsjón með kaupunum á skipinu og breytingum á því ytra. „Þetta verður nýsmíði,“ segir hann í samtali við kvotinn.is,  en við keyptum skrokk í Nýfundnalandi, sem var 23 metrar að lengd og lengdum hann um 22 metra og gerðum bát úr honum. Tæplega 46 metra langan og 9,20 á breidd, 680 tonn. Þetta var bara skrokkur, en er nú orðinn alvöru skip, vistvænn alvöru barkur,“ segir Axel.

„Svo er línan dregin í gegnum síðuna á honum, sem er nýjung á Íslandi, en þekkist annars staðar. Allt sem við erum að gera er nýjung á Íslandi þó útgerðir í öðrum löndum hafi farið þessa leið áður. Skipið er þá alveg lokað og enginn á rúllu í lúgu á síðunni. Þegar fiskurinn er kominn inn á dekkið er þetta svo eins og hjá venjulegum línubátum.“

Stormur er með nýjustu gerð af Mustad beitningarvél með 50.000 króka. Báturinn er líka græjaður fyrir net og ætlunin að fara á grálúðunet.

„Ég fór einn túr með norska bátnum Lóran, sem er eins búinn með dráttinn í gegnum síðuna, í fyrra til að sjá hvað þeir væru að gera. Ég sá að það var eitt skref fyrir mig, en stórt skref fyrir útgerð línubáta á Íslandi,“ segir Axel sem mun sigla skipinu heim þegar þar að kemur.

„Skipið er fullt af nýjungum, en ekkert nýtt sem við erum að finna upp. Þetta hafa menn gert allt áður en við erum að sameina það besta sem við þekkjum í einum bát. Það þarf alltaf einhvern vitleysing í hverja verstöð til að það verði einhver framþróun,“ segir Axel Jónsson.

Stormur

Hér má sjá myndband af sjósetningu Storms:

Deila: