Styðja breytingar á strandveiðikerfinu

Deila:

Bæjarráð Hornafjarðar styður “jákvæðar breytingar,” sem kunna að verða gerðar á strandveiðikerfinu, en strandveiðar mega hefjast í maí. Á fundi bæjarráðs sem haldinn var þann 18. apríl var eftirfarandi samþykkt:

„Bæjarráð telur að hugmyndir sem fram koma í frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 með síðari breytingum (strandveiðar) um fjölgun sóknardaga séu jákvæðar og til þess fallnar að draga úr sjósókn í válegum veðrum og auka þar með öryggi sjófarenda. Strandveiðar eru atvinnuvegur sem fastur er í sessi í sveitarfélaginu og eykur fjölbreytni atvinnulífsins. Því styður bæjarráð jákvæðar breytingar sem kunna að vera gerðar á kerfinu.“

 

Deila: