Nýrri Drangey hleypt af stokkunum

Deila:

Nýjum ísfisktogara FISK Seafood á Sauðárkróki, Drangey SK 2, var hleypt af stokkunum í skipasmíðastöðinni Cemre í Tyrklandi á laugardagsmorgun.

„Það var gaman að sjá skipið renna í sjó fram. Svona stundir eru alltaf hátíðlegar,“ sagði Gylfi Guðjónsson, útgerðarstjóri FISK, í samtali við Morgunblaðið. Smíði togarans segir Gylfi hafa gengið vel, en Drangey er systurskip Kaldbaks EA sem ÚA fékk fyrir skömmu.

Samherji fær tvo togara úr þessari sömu seríu á næstunni. Drangeyin nýja er 62,5 metra löng og 13,5 metra breið. Talsverð vinna er eftir við frágang skipsins þegar það kemur væntanlega til landsins síðsumars. Þá á eftir að setja niður vinnsludekk og ýmsan búnað, svo það verður fyrst að áliðnu hausti sem Drangeyin kemst til veiða.

Í áhöfn verða um 13-15 manns. Það var síðast 1973 sem FISK Seafood fékk nýtt skip, sem einnig hét Drangey SK og var einn af Japanstogurunum svonefndu. Í dag er fyrirtækið með fimm skip í útgerð, þar af þrjá togara. Tími þótti kominn á endurnýjun skipastóls, en hvort einhverju verði skipt út fyrir Drangey nýju segir Gylfi Guðjónsson seinni tíma mál.

Deila: