HB Grandi kaupir karfavél frá Völku

Deila:

HB Grandi skrifaði á dögunum undir samning við Völku ehf. um kaup á á vatnsskurðarvél og sjálfvirkum afurðaflokkara sem sérhannaður er fyrir karfavinnslu..

„Góð reynsla er komin á fyrstu vatnsskurðarvélina sem byrjaði sem þróunarverkefni milli Völku ehf og HB Granda hf. fyrir um 8 árum síðan. „Mikill áhugi er fyrir því að halda áfram þróun í beinskurði á karfaflökum með aukin afköst, bætta nýtingu, aukna sjálfvirkni og breiðara vöruframboð í huga og er þetta verkefni liður í því.“ segir Gísli Kristjánsson, framleiðslustjóri í Reykjavík í frétt á heimasíðu HB Granda.

Afhendingatími er áætlaður í í ágúst 2017.

Myndin er frá undirskrift samninganna.

 

Deila: