Ekki sást gára frá múkka

Deila:

Strandveiðar eru nú komnar á fullt skrið.  Landanir yfir þúsund og 377 bátar búnir að virkja leyfin.    Að loknum 4. degi veiðanna var mest búið af maískammtinum á svæði A, 39% samkvæmt frétt á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.

Að sögn Andra Viðars Víglundssonar, á Margréti ÓF Ólafsfirði, er þorskurinn kominn á slóðina, mun betri veiði nú á fyrstu dögum strandveiða en undanfarin ár.  Flestir í mokveiði.  Sá sem varð fyrstur í land sl. fimmtudag sá fuglager útaf Múlanum, drap á og lét reka inn í gerið.  Hann náði aldrei að renna nema þremur rúllum af fjórum áður en skammtinum var náð.

Aðrir sem voru á veiðum 4. maí létu vel af sér og ekki óalgengt að menn væru komnir í land uppúr hádegi í slíkri blíðu að ekki sást gára frá múkka.  Myndin sem hér fylgir sýnir þetta glöggt, en hana tók Víðir Örn Jónsson á Víði ÞH Grenivík þennan sama dag.

 

Deila: