Nýtt nafn og merki

Deila:

Sambandsþing Verkstjórasambands Íslands hefur einróma samþykkt að breyta nafni samtakanna í Samband stjórnendafélaga en innan vébanda þess eru tólf félög stjórnenda og verkstjóra. Með því er ætlunin að höfða betur til stærri hóps stjórnenda sem stýra fjölbreytilegum verkefnum í nútíma samfélagi. Þetta var ákveðið á þingi stjórnenda í Stykkishólmi dagana 19.-20. maí sl.

Samband stjórnendafélaga

Skúli Sigurðsson, forseti Sambands stjórnendafélaga (STF) segir að nú verði allt kynningarstarf eflt með það að markmiði að fjölga verulega í hópi aðildarfélaga STF. „Við höfum náð að fjölga félagsmönnum talsvert á liðnum misserum með markvissu kynningarstarfi en við teljum okkur geta gert betur. Aðild að stjórnendafélagi hefur mikla kosti en við bjóðum m.a. upp á gríðarlega góða endurmenntun í fjarnámi og einn öflugasta sjúkrasjóð sem til er í landinu. Við teljum nýtt nafn og ný starfsheiti endurspegla betur innihald starfanna og vera í samræmi við tíðarandann í samfélaginu.“

 

 

Deila: