Greina eiginleika þorskhausa

Deila:

Matís hefur hlotið styrk úr AVS sjóðnum til þess að greina eiginleika þorskhausa.

„Í þessu forverkefni er ætlunin að greina eiginleika þorskhauss, með því að kanna mismunandi hluti hans. Greiningin mun styðja við uppsetningu á gagnagrunni sem getur orðið mikilvægur hluti að frekari þróun verðmætra afurða úr þorskhaus til þessa að vega upp á móti þeirri markaðslegri hnignun sem hefur átt sér stað undanfarið á þurrkuðum þorskhausum,“ segir í frétt á heimasíðu Matís.

Áætluð lok þessa verkefnis er á vormánuðum 2018.

Deila: