Ný bók eftir Ágúst Einarsson um sjávarútveg 

Deila:

Komin er út bókin Fagur fiskur í sjó. Íslenskur sjávarútvegur handa skólum og almenningi eftir Ágúst Einarsson prófessor. Í bókinni er fjallað um sjávarútveg frá fjölmörgum sjónarhornum og er hún tæpar 300 bls. Bókin hentar vel fyrir framhaldsskóla og áhugafólk um sjávarútveg.

Fagur fiskur í sjó (2)

Sjávarútvegur hefur staðið undir mikilli breytingu lífskjara hér á landi í rúma öld og getið af sér margar stoð- og þjónustugreinar. Niðurstöður bókarinnar eru meðal annarra eftirfarandi:

  • Framlag sjávarútvegs og tengdra greina til landsframleiðslu er um 20% og gerir það sjávarútveg að einni mikilvægustu atvinnugrein hérlendis.
  • Afköst hafa aukist mikið í sjávarútvegi síðustu rúm 30 ár.
  • Fiskveiðistjórnunarkerfið hefur skapað mikil verðmæti.
  • Það er réttnefni hér á landi að kalla 20. öldina öld sjávarútvegsins.

Víða er leitað fanga og er bókin ríkulega skreytt ljósmyndum og skýringarmyndum. Útgefandi bókarinnar er Háskólinn á Bifröst.

Ágúst Einarsson prófessor

Dr. Ágúst Einarsson er prófessor emeritus við Háskólann á Bifröst og fyrrverandi rektor skólans. Hann hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum í íslensku samfélagi og var meðal annars alþingismaður og prófessor við Háskóla Íslands og hefur setið í fjölmörgum stjórnum og ráðum. Ágúst hefur skrifað fjölda bóka og greina.

 

Deila: