Formleg nafngift Kaldbaks

Deila:

Kaldbak EA 1, hinu nýja skipi Útgerðarfélags Akureyringa, verður formlega gefið nafn við hátíðlega athöfn á morgun, laugardaginn 26. ágúst.

Athöfnin hefst kl. 14.00 á Togarabryggjunni við ÚA.

Eftir athöfnina á bryggjunni verður boðið upp á veitingar í matsal ÚA.

„Þar fer fram afhending gjafar úr Samherjasjóðnum af þessu tilefni. Einnig minnumst við þess að 70 ár eru liðin frá því Kaldbakur, fyrsta skip Útgerðarfélags Akureyringa,  kom til landsins og að 60 ár eru liðin frá því að frystihús ÚA var tekið í notkun.

Allir eru hjartanlega velkomnir,“ segir á heimasíðu Samherja.

Á myndinni eru gamli og nýi Kaldbakur við komu hans fyrr á árinu.

Ljósmynd Jóhann Ólafur Halldórsson

 

Deila: