Cuxhaven komin á veiðar

Deila:

Cuxhaven NC 100 nýtt skip Deutsche Fischfang Union, dótturfélags Samherja í Þýskalandi hefur haldið á veiðar. Cuxhaven NC100 sem hannað er af Rolls Royce er 80m langt og 16m breitt, smíðað í Mykleburst skipasmíðastöðinni í Noregi. Cuxhaven er fyrsta nýsmíði Deutsche Fischfang Union í 21 ár en það skip bar einnig nafnið Cuxhaven. Frá þessu er sagt á heimasíðu Samherja.

Eigendur Samherja ásamt Haraldi Grétarssyni framkvæmdastjóra Deutsche Fischfang Union og Óskari Ævarssyni útgerðastjóra tóku á móti skipinu 15.ágúst sl. í Álasundi. Þá voru veiðarfæri tekin um borð og skipið gert klárt að öðru leyti. Cuxhaven hélt svo til veiða í Barentshafi 20.ágúst. Skipstjórar eru Stefán Viðar Þórisson og Hannes Kristjánsson.

Cuxhaven er afar vel búið á allan hátt bæði hvað varðar vélbúnað, vinnslu og aðbúnað áhafnar sem getur orðið allt að 35 manns. Með nýjustu tæknilausnum er skipið mun hagkvæmara í rekstri og umhverfisvænna en eldri skip. Vinnsludekk er hannað og smíðað af Slippnum á Akureyri og hefur búnað m.a. frá Vélfagi á Ólafsfirði.

 

Óskar Ævarsson útgerðarstjóri DFFU, Hannes Kristjánsson skipstjóri, Stefán Viðar Þórisson skipstjóri og Haraldur Grétarsson framkvæmdastjóri DFFU.

Óskar Ævarsson útgerðarstjóri DFFU, Hannes Kristjánsson skipstjóri, Stefán Viðar Þórisson skipstjóri og Haraldur Grétarsson framkvæmdastjóri DFFU.

„Þetta eru mikil tímamót í rekstri DFFU hér í Þýskalandi. Meðal annars hefur allur aðbúnaður áhafnar og vinnuaðstaða verið stórbætt. Það er mikil áskorun að fá allt til að virka í svona tæknilega flóknu skipi og næstu vikur verða því spennandi hjá okkur,“ segir Haraldur Grétarsson framkvæmdastjóri Deutsche Fischfang Union GmbH.

 

Deila: