Minnt á skil afladagbóka
Fiskistofa minnir á mikilvægi þess að skila afladagbókum á réttum tíma.
Skilafrestur á afladagbókum fyrir ágúst er til 14. september nk. Í 9. gr. reglugerðar nr. 746/2016, um afladagbækur, er kveðið á um að skylt sé að senda upplýsingar úr afladagbókum til Fiskistofu innan tveggja vikna frá lokum hvers mánaðar.