Rússland stærsti fiskmarkaður Færeyja

Deila:

Færeyingar flytja Færeyingar flytja mest út af sjávarafurðum til Rússlands. Á fyrri helmingi þessa árs fór meira þangað en til nokkurs annars lands. Verðmæti útflutnings þangað jókst um 5,7 milljarða íslenskra króna miðað við sama tíma í fyrra. Útflutningurinn á þessu tímabili nú skilaði alls 18,8 milljörðum króna, eða 27% af heildinni.

Þar njóta Færeyingar þess að hafa ekki tekið þátt í refsiaðgerðum ESB og Bandaríkjanna gegn Rússlandi vegna átakanna í Úkraínu. Fyrir vikið hefur Rússland ekki sett innflutningsbann á fiskafurðir frá Færeyjum, eins og á Ísland, sem fylgdi ESB og Bandaríkjunum að máli í refsiaðgerðunum.

Hér sést skipting útflutnings sjávarafurða frá Færeyjum skipt á lönd og tegundir.

Hér sést skipting útflutnings sjávarafurða frá Færeyjum skipt á lönd og tegundir.

Langt er í næstu útflutningslöndin, en næst koma Bretland og Bandaríkin. Útflutningur til hvors lands fyrir sig skilaði á fyrri helmingi þessa árs um 7,5 milljörðum íslenskra króna. Þar á eftir koma Danmörk og Þýskaland með 5,8 milljarða í útflutningsverðmæti hvort land og loks Kína með 4,4 milljarða.

Lax er langverðmætasta útflutningsvaran, sem flutt er utan til sex helstu viðskiptalandanna. Af því sem selt er til Rússlands er helmingurinn lax og þar á eftir koma makríll og síld. Til Bandaríkjanna, Þýskalands og Kína fer nær eingöngu lax, af þorski, ýsu og öðrum botnfiski fer mest til Bretlands.

Hér má sjá breytingar á útflutningum síðustu ár. Aukningin til Rússlands er gífurleg.

Hér má sjá breytingar á útflutningum síðustu ár. Aukningin til Rússlands er gífurleg.

Frá aldamótum hafa orðið miklar breytingar á útflutningum eftir löndum. Mesta breytingin er hinn gífurlegi vöxtur í útflutningi til Rússlands, en sala til Bandaríkjanna og Kína hefur einnig aukist. Þá  hefur meira farið til Þýskalands og Hollands og Belgíu. Útflutningur til þeirra landa sem voru efst á listanum um aldamótin, Danmerkur, Bretlands, Ítalíu, Spánar og Frakklands hefur minnkað nokkuð, en er enn töluverður.

Deila: