Fljótt að breytast

Deila:

,,Þetta er fljótt að breytast. Fyrir aðeins nokkrum dögum var hér mokveiði en núna gengur frekar illa. Það berast hins vegar fréttir af góðri síldveiði í Síldarsmugunni og við verðum trúlega að elta síldina þangað áður en vertíðin er úti,“ segir Hjalti Einarsson, skipstjóri á Víkingi AK í samtali á heimasíðu HB Granda.
Víkingur fór frá Vopnafirði á mánudagsmorgun en skipið kom þangað fyrir helgina með rúmlega 1.000 tonn af síld sem fóru til vinnslu hjá uppsjávarfrystihúsi HB Granda. Að sögn Hjalta hafa ein fjögur til fimm skip verið að veiðum utarlega á Héraðsflóanum en önnur hafa sótt í Síldarsmuguna.
,,Við erum búnir að vera á Héraðsflóadjúpi en erum nú komnir norður undir Borgarfjarðargrunn. Það er bara verið að leita að síld. Við höfum orðið varir við smá peðrur við botninn en ekkert magn að ráði. Venjulega er síldveiðin best eftir að skyggja fer af degi en það var léleg veiði sl. nótt,“ segir Hjalti en hann telur að aflinn hafi síðdegis á þriðjudag verið kominn í um 260 tonn.
,,Vertíðin endar örugglega hjá okkur á síldveiðum í Síldarsmugunni en við erum ekki að fara þangað í bráð. Siglingin er nokkuð löng og spáin er sú að þar verði bræla um næstu helgi. Síldin í Síldarsmugunni er hins vegar mjög góð og hið sama má segja um síldina sem veiddist á Héraðsflóadjúpinu þegar veiðin var hvað best fyrir nokkrum dögum. Það er eins og að smærri síldin haldi sig sunnar við Austfirði og það kemur fyrir að við hittum á síld af blandaðri stærð,“ segir Hjalti Einarsson.
 

Deila: