Valdimar farinn af stað á ný

Deila:

Valdimar GK 195 sem í eigu Þorbjarnar hf , er loksins farinn af stað á ný eftir miklar endurbætur . Valdimar GK landaði í lok maí í Grindavík og fór svo til Hafnarfjarðar þar sem hann lá í allt sumar en þar var skipt um ljósavél í bátnum sem og allt rafmagn var endurnýjað úr 220 voltum yfir í 380 volt.

Valdimar GK fór svo í prufutúr og landaði í Grindavík 9. október áður en hann hélt norður fyrir land og landaði á Siglufirði í vikubyrjun.

Mynd og texti af http://skoger.123.is/

 

Deila: