Deilt um mögulegar netaveiðar báta í krókakerfinu

Deila:

Aðalfundur LS stendur yfir.  Hann var settur kl 13 í gær með ávarpi formanns LS, Axels Helgasonar, skýrslu Arnar Pálssonar, framkvæmdastjóra LS og ávarpi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, ráðherra sjávarútvegs og landbúnaðar.  Fundinum lýkur í dag.

Fundurinn vinnur nú í nefndum þar sem fjallað er um tillögur frá svæðisfélögum LS.  Fyrirfram var ljóst að tillaga um að heimila netaveiðar krókaaflamarksbáta yrði mikið hitamál. Mjög skiptar skoðanir eru um málið, rök bæði með og á móti.

Allsherjarnefnd aðalfundarins samþykkti var að vísa henni til sameiginlegs fundar í dag.

Í máli fundarmanna kom m.a. fram að tillögunni væri ætlað að bæta hag félagsmanna, að þeir gætu gert út með hagkvæmari hætti.  Hver og einn ætti að geta ráðið því hvort það borgi sig að veiða fiskinn í net eða króka.

Andstætt sjónarmið var að netaveiðar væri ávísun á minni verðmæti á hvert kíló og gæfi neikvæða mynd að veiðum smábáta í krókaaflamarki.

Fjölmenni var við setningu fundarins

 

Deila: