Rauður dregill og trompetleikur

Deila:

Í vikubyrjun var nýr aðalinngangur HB Granda við Norðurgarð tekinn í notkun. Vegna tilefnisins var rauður dregill lagður að nýja innganginum og trompetleikarar tóku á móti starfsfólki þegar það mætti til vinnu. Starfsfólki var einnig boðið upp á hressandi engiferskot og grænan drykk í tilefni dagsins.
Mikil ánægja er með aðalinnganginn og var starfsfólk einnig ánægt með móttökurnar sem það fékk við komuna til vinnu um morguninn.

 

Deila: