Marel færði fæðingardeildum ungbarnavogir

Deila:

Marel á Íslandi hefur undanfarin ár fært fæðingardeildum landsins ungbarnavogir að gjöf í aðdraganda jólanna en ákveðið var að gefa veglegar gjafir í þágu samfélagsins frekar en að senda hefðbundin jólakort og -gjafir á aðventunni.

Í lok október síðastliðinn heimsóttu fulltrúar Marel kvennadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi og Fæðingar- og Vökudeildir LSH í Reykjavík. Alls fengu deildirnar fjórar ungbarnavogir að gjöf en á næstu dögum fær fæðingarheimilið Björkin einnig vog.

Vogirnar mæla þyngd með tveggja gramma nákvæmni og koma með eilífðarábyrgð. Á þeim er mælistika svo hægt er að mæla lengd barnanna samhliða vigtun. Hugbúnaður vogarinnar gerir enn fremur ráð fyrir hreyfingu og því kemur ekki að sök þó börnin kunni að hreyfa sig á meðan þau eru vigtuð.

Fæðingastofa Bjarkarinnar í Reykjavík opnaði í byrjun maí á þessu ári og verður gjöfin kærkominn viðbót við aðstöðuna. Gjöfin kemur einnig í góðar þarfir á LSH en vogirnar þrjár eru viðbót við þær vogir sem Marel hefur áður gefið vöku- og fæðingardeildum LSH. Vogin kemur sér einstaklega vel á vökudeildinni en mikil nákvæmni í mælingum er sérlega mikilvæg þegar fyrirburar eru vigtaðir.

Á Akranesi var vogin strax tekin í notkun og það var hin tveggja daga gamla Eldey Hrafntinna Éiru Sigurbjörnsdóttir sem fyrst var vigtuð. Snæfellingarnir Valdimar Gunnar Sigurðsson, alþjóðlegur sölustjóri Marel, og Þórarinn Kristjánsson, sölustjóri Marel á Íslandi, afhentu vogina á Akranesi fyrir hönd fyrirtækisins.

Margel ungbarnavogir fólk„Við erum Snæfellingar og hugsum hlýtt til fæðingardeildarinnar hér á Akranesi,“ sögðu þeir Þórarinn og Valdimar við afhendingu gjafarinnar. Anna Björnsdóttir, deildarstjóri kvennadeildar HVE, veitti gjöfinni viðtöku en með þeim á myndinni eru Elísabet Harles ljósmóðir, Lára Dóra Oddsdóttir ljósmóðir, Katharina Schumacher, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir, og Rósa Marinósdóttir, hjúkrunarfræðingur og sviðsstjóri hjúkrunar á heilsugæslusviði.

Deila: