Skipti á aflamarki – tilboð óskast

Deila:

Samkvæmt 5. gr. reglugerðar nr. 607/2017, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2017/2018, með síðari breytingum, auglýsir Fiskistofa eftir tilboðum í skipti á aflamarki.

Í boði er neðangreint aflamark, í tilgreindum tegundum, í skiptum fyrir aflamark í þorski. Við mat á tilboðum er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar.

Viðmiðunarverð síðasta mánaðar: þorskur 159,86 kr/kg og ýsa 140,52 kr/kg.

Tilboðsmarkaðurinn opnar klukkan 8:00 mánudaginn 11. desember 2017. Ekki koma til álita tilboð þar sem aflamark sem boðið er, nær ekki 50% þorskígilda þeirrar tegundar sem óskað er eftir.

Athugið að samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu ber að greiða 12.200 krónur fyrir hverja úthlutun aflaheimilda á tilboðsmarkaði. Þannig ber tilboðsgjafa að greiða þá upphæð fyrir hvert tilboð sem tekið er að fullu eða að hluta.

 

Fisktegund Þíg Aflamark  
Blálanga 0,63    83.200 kg
Skötuselur 2,10    38.500 kg
Gulllax 0,39  493.000 kg
Skarkoli 0,69  345.920 kg
Langlúra 0,53    34.280 kg
Sandkoli 0,19    23.920 kg
 Loðna 0,13       6.733 tonn
Úthafsrækja 1,24  265.000 kg
Litli karfi 0,43    79.000 kg
Djúpkarfi 0,80  625.000 kg

 

Eingöngu er unnt að gera tilboð í gegnum UGGA, upplýsingagátt Fiskistofu. Tilboðsmarkaðinn má finna undir Umsóknir/Þjónusta. Vakin er athygli á að Ugginn sendir sjálfkrafa staðfestingu um móttöku tilboðs. Tilboð telst ekki móttekið nema slík staðfesting berist.

Afturköllun tilboða eftir að umsóknarfrestur er runninn út er ómheimil. 

Að gefnu tilefni er rétt að benda bjóðendum á að skv. 3. mgr. 5. gr. reglugerðar 630/2017 sem fjallar um þennan tilboðsmarkað, eru það eingöngu bjóðendur, ekki Fiskistofa, sem er heimilt að afturkalla tilboð svo lengi sem þeir gera það áður en tilboðsfrestur er liðinn. Því er mikilvægt að yfirfara tilboð vel aður en því er skilað og skoða tilboðið undir „Málin mín“ í UGGA eftir að tilboðinu hefur verið skilað til að tryggja að allt sé rétt. Ef mistök hafa átt sér stað við tilboðsgerð þá getur bjóðandi afturkallað tilboðið í UGGA allt þar til tilboðsfrestur rennur út.

Frestur til að skila tilboðum er til kl. 16:00 mánudaginn 18. desember 2017.

Deila: