Ný Cleopatra til Troms í Noregi

Deila:

Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Nord-Lenangen í Tromsfylki í Noregi. Kaupandi bátsins er Terje Moltubakk sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum.

Báturinn hefur hlotið nafnið Sara Louise.  Báturinn mælist 14brúttótonn. Sara Louise er af gerðinni Cleopatra 36.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D13 650hp tengd ZF V-gír. Í bátnum er Nanni ljósavél.  Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni Furuno.

Báturinn er einnig útbúin með tveimur vökvadrifnum hliðarskrúfum sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til línuveiða. Veiðibúnaður kemur frá Noregi. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.

Rými er fyrir  15 380lítra kör í lest.  Fullkomin eldunaraðstaða auk borðsals er staðsett í brúnni.  Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar.  Salerni með sturtu er í lúkar.

Báturinn hefur þegar hafið veiðar.

 

Deila: