Þokkalegt ár hjá fiskimjölsverksmiðjum SVN

Deila:

Árið 2017 var þokkalegt hjá fiskimjölsverksmiðjum Síldarvinnslunnar hvað magn áhrærir en verð á afurðum þeirra var hins vegar lágt. Samtals tóku verksmiðjurnar þrjár (í Neskaupstað, á Seyðisfirði og í Helguvík) á móti 196.697 tonnum af hráefni á árinu. Til samanburðar má geta þess að á árinu 2016 tóku þær á móti 131.460 tonnum, 259.394 tonnum árið 2015, 161.168 tonnum árið 2014 og 206.074 tonnum árið 2013. Það eru ekki síst loðnuvertíðirnar sem ráða því hve hráefni verksmiðjanna er mikið á ári hverju. Sem dæmi má nefna að loðnuvertíðir áranna 2016 og 2014 voru lélegar og þá kom lítið í hlut verksmiðjanna.

 

Hér verða birtar upplýsingar um móttekið hráefni hverrar verksmiðju á árinu 2017 og einnig upplýsingar um framleiðslu þeirra á mjöli og lýsi á árinu:

 

Staður Móttekið magn hráefnis Framleitt mjöl  Framleitt lýsi
 Neskaupstaður 118.523 24.684 7.944
 Seyðisfjörður 59.420 12.235 1.607
 Helguvík 18.754 3.325 1.457

Til samanburðar má geta þess að á árinu 2016 tók verksmiðjan í Neskaupstað á móti 91.043 tonnum af hráefni, verksmiðjan á Seyðisfirði 28.501 tonni og verksmiðjan í Helguvík 11.916 tonnum.

Á myndinni er fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar í Helguvík. Ljósm. Sigurður K. Kolbeinsson

 

Deila: