Bölvuð bræla allan janúar

Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til Seyðisfjarðar fyrir helgi með 95 tonn. Aflinn er mest þorskur. Heimasíða Síldarvinnslunnar hafði samband við Þórhall Jónsson skipstjóra og spurði hvernig veiðiferðin hefði gengið.

„Þessi túr gekk vel. Við vorum að veiðum í þrjá sólarhringa og aflinn var þokkalegur. Þetta var svona nudd. Það var alger blíða á miðunum og það var skemmtileg tilbreyting. Það er búin að vera bölvuð bræla allan janúar þar til í þessum túr. Aflinn framan af mánuðinum var takmarkaður en hafa ber í huga að veðrið truflaði veiðar, það virtist ekki vera mikill fiskur á miðunum hér eystra og við vorum jafnvel einskipa á slóðinni. Nú hefur veður skánað, allavega í bili, og við verðum varir við meira af fiski. Þá hefur skipum fjölgað mjög á Austfjarðamiðum vegna veðurfars á öðrum miðum við landið. Hingað eru komnir frystitogarar og eins eru Vestmannaeyjaskipin komin hingað austur. Með tilkomu þeirra fæst betri vitneskja um stöðuna á miðunum. Núverandi blíða gefur fyrirheit um að veðrið geti farið að lagast og þá verður þetta fínt,“ sagði Þórhallur.

Fyrir þessa veiðiferð landaði Gullver á Seyðisfirði sl. mánudag. Þá lönduðu Vestmannaeyjaskipin Bergey og Vestmannaey á Seyðisfirði sl. miðvikudag og þegar þetta er ritað er Bergey að landa á Eskifirði og Vestmannaey á Seyðisfirði.

Frystitogarinn Blængur NK millilandaði í Hafnarfirði sl. þriðjudag. Aflinn var 230 tonn upp úr sjó.

 

Deila: