Marel skarar framúr

Deila:

Marel hefur verið valið á lista framúrskarandi fyrirtækja 2017 og er því meðal þeirra fyrirtækja sem efla íslenskt efnahagslíf.

Alls uppfylla 862 fyrirtæki eða einungis 2,2% allra fyrirtækja ströng skilyrði Creditinfo um fjárhagslegan styrk og stöðugleika. Við mat á fyrirtækjunum er horft til þriggja ára tímabils, nú árin 2014, 2015 og 2016, og þurfa skilyrðin að vera uppfyllt öll árin. Marel hefur jafnframt náð þeim árangri að vera á listanum síðastliðin átta ár eða allt frá upphafi.

„Það er mikils virði fyrir Marel að teljast til þessa hóps framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi. Þetta er um leið viðurkenning til starfsmanna Marel um afbragðs árangur,“ segir í frétt á heimasíðu Marel.

 

Deila: