Fiskeldisfyrirtæki á byrjunarreit?

Deila:

Áform fyrirtækja um fiskeldi í Seyðisfirði, Mjóafirði, Norðfjarðarflóa, Önundarfirði, Jökulfjörðum og Eyjafirði lenda líklega á byrjunarreit ef frumvarpsdrög um útboðskerfi á fiskeldissvæðum verða samþykkt óbreytt. Þetta segir Einar K Guðfinnsson, formaður landssambands fiskeldisstöðva, í samtali við ruv.is.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur kynnt drög að frumvarpi um lagabreytingar sem snúa að fiskeldi. Þeim er ætlað að auka sátt um greinina og koma á nýju útboðskerfi. Hafrannsóknastofnun myndi skipta fjörðum í eldissvæði, þau yrðu auglýst og álitlegasta umsóknin valin. Útboðskerfið myndi hins vegar ekki gilda um fjölda umsókna sem þegar eru komnar til Matvælastofnunar. Ef firðirnir hafa verið burðarþolsmetnir halda umsóknirnar velli, annars ekki.

Dæmi eru um að fyrirtæki hafi lagt mikla vinnu í matsáætlanir í fjörðum án burðarþolsmats og gætu þau þurft að taka þátt í útboði. Þetta á við um Seyðisfjörð, Mjóafjörð og Norðfjarðarflóa þar sem Fiskeldi Austfjarða er með samþykkta matsáætlun en reyndar gilt lítið 200 tonna leyfi í Seyðisfirði. Aukin áform þar fóru í útboðsferli. Í Önundarfirði fyrir vestan er fyrirtækið S47 með eldisleyfi fyrir regnbogasilung en gæti mögulega ekki haslað sér völl í laxeldi nema fara á byrjunarreit, yrðu drögin samþykkt óbreytt, segir Einar K. Guðfinnsson, formaður Landssambands fiskeldisstöðva. „Ef þeir vildu skipta yfir í laxeldisleyfi sem er ekkert ólíklegt, þá þyrftu þeir væntanlega að fara í þessi útboð. Það er alveg ljóst að fyrir lítil fyrirtæki þá er það þröng staða að keppa við kannski öflugri fyrirtæki sem vildu hasla sér völl í laxeldi á þessum firði ef til kæmi. Við viljum auðvitað stuðla að því að það verði ekki þetta kapphlaup um leyfin sem geti gefið ýkta mynd um raunveruleg áform en ég tel það að minnsta kosti skynsamlegt að menn skoða aðstæðurnar á hverju svæði fyrir sig og taki þá ákvarðanir á grundvelli þess,“ segir Einar.

Þá hefur Arnarlax tilkynnt um eldisáform og unnið að gerð matsáætlunar í Jökulfjörðum og í utanverðum Eyjafirði og AkvaFuture er með áform uppi í innanverðum Eyjafirði. Þessi svæðið hafa heldur ekki verið við burðarþolsmetin. „Það er ljóst mál að þar með yrðu þeir að fara á byrjunarreit og taka þátt í þessu útboði af þeim toga sem það verður,“ segir Einar K. Guðfinnsson, formaður Landssambands fiskeldisstöðva.

 

Deila: