Auglýst eftir skiptum á aflamarki

Deila:

Fiskistofa auglýsir nú eftir tilboðum í skipti á aflamarki. Í boði er neðangreint aflamark, í tilgreindum tegundum, í skiptum fyrir aflamark í þorski. Við mat á tilboðum er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar.

Viðmiðunarverð síðasta mánaðar: þorskur 151,28 kr/kg.

Tilboðsmarkaðurinn opnaði klukkan 8:00 í morgun. Ekki er gerð krafa um lágmarkstilboð.

Athugið að samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu ber að greiða 12.900 krónur fyrir hverja úthlutun aflaheimilda á tilboðsmarkaði. Þannig ber tilboðsgjafa að greiða þá upphæð fyrir hvert tilboð sem tekið er að fullu eða að hluta.

 

Fisktegund Þíg Aflamark
Ýsa 1,07  1.103.533 kg
Blálanga 0,63        83.200 kg
Skötuselur 2,10        38.500 kg
Gulllax 0,39     493.000 kg
Skarkoli 0,69     333.920 kg
Langlúra 0,53        34.280 kg
Sandkoli 0,19        23.920 kg
Loðna 0,13          3.101 tonn
Kolmunni 0,10        15.529 tonn
Úthafsrækja 1,24      265.000 kg
Litli karfi 0,43        79.000 kg
Úthafskarfi 0,83      106.848 kg
Djúpkarfi 0,80      625.000 kg

 

Eingöngu er unnt að gera tilboð í gegnum UGGA, upplýsingagátt Fiskistofu. Tilboðsmarkaðinn má finna undir Umsóknir/Þjónusta. Vakin er athygli á að Ugginn sendir sjálfkrafa staðfestingu um móttöku tilboðs. Tilboð telst ekki móttekið nema slík staðfesting berist.

 

Deila: