Grásleppuvertíðin hefst 20. mars

Deila:

Gefin hefur verið út reglugerð um grásleppuveiðar. Upphaf vertíðarinnar verður á hefðbundnum tíma 20. mars. Grásleppuveiðileyfi hvers báts skal gefið út til 20 samfelldra daga í upphafi, þar til ákvörðun um heildarfjölda daga hefur verið tekin og skal bundið við ákveðið veiðisvæði og veiðitímabil.

Þá hefur ráðherra ákveðið að hefja vinnu við endurskoðun á fyrirkomulagi hrognkelsaveiða, bæði hvað varðar stjórn veiðanna og eins mögulegar aðgerðir til að draga úr meðafla með hrognkelsaveiðum. Þeirri vinnu á að ljúka í tíma til að veiðistjórn á næsta tímabili, þ.e. 2019, geti byggst á niðurstöðum hennar.

Veiðisvæði og veiðitímabil eru eftirfarandi:

  1. Faxaflói, frá línu réttvísandi vestur frá Garðskagavita 64°04,90 N 022°41,40 V að línu rétt­vísandi vestur frá Dritvíkurtanga (-flögum) 64°45,00 N 023°55,30 V.
    Innan veiðitímabilsins frá og með 1. apríl til og með 14. júní.
  2. Breiðafjörður, svæði 1 frá línu réttvísandi vestur frá Dritvíkurtanga (-flögum) 64°45,00 N 023°55,30 V að línu réttvísandi vestur frá Bjargtöngum 65°30,20 N 024°32,10 V.
    Innan veiðitímabilsins frá og með 1. apríl til og með 14. júní.
    Breiðafjörður, svæði 2 innan línu sem dregin er úr Krossnesvita vestan Grundarfjarðar 64°58,30 N 023°21,40 V í Lambanes vestan Vatnsfjarðar 65°29,30 N 023°12,60 V.
    Innan veiðitímabilsins frá og með 20. maí til og með 2. ágúst.
  3. Vestfirðir, frá línu réttvísandi vestur frá Bjargtöngum 65°30,20 N 024°32,10 V að línu rétt­vísandi norður frá Horni (grunnpunktur 1) 66°27,40 N 022°24,30 V.
    Innan veiðitímabilsins frá og með 1. apríl til og með 14. júní.
  4. Húnaflói, frá línu réttvísandi norður frá Horni (grunnpunktur 1) 66°27,40 N 022°24,30 V að línu réttvísandi norður frá Skagatá 66°07,20 N 020°05,90 V.
    Innan veiðitímabilsins frá og með 20. mars til og með 2. júní.
  5. Norðurland, frá línu réttvísandi norður frá Skagatá 66°07,20 N 020°05,90 V að línu rétt­vísandi austur frá Fonti á Langanesi (grunnpunktur 9) 66°22,70 N 014°31,90 V.
    Innan veiðitímabilsins frá og með 20. mars til og með 2. júní.
  6. Austurland, frá línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi (grunnpunktur 9) 66°22,70 N 014°31,90 V að línu réttvísandi austur frá Hvítingum (grunnpunktur 18) 64°23,90 N 014°28,00 V.
    Innan veiðitímabilsins frá og með 20. mars til og með 2. júní.
  7. Suðurland, frá línu réttvísandi austur frá Hvítingum (grunnpunktur 18) 64°23,90 N 014°28,00 V að línu réttvísandi vestur frá Garðskagavita 64°04,90 N 022°41,40 V.
    Innan veiðitímabilsins frá og með 20. mars til og með 2. júní.

Reglugerðina í heild má sjá á slóðinni https://www.stjornarradid.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=b41a5a1e-26d1-11e8-9429-005056bc530c

 

 

Deila: