Köflótt kolmunnaveiði

Deila:

Venus NS kom til Vopnafjarðar í byrjun vikunnar með rúmlega 2.300 tonn af kolmunna sem fór til vinnslu hjá fiskmjölsverksmiðju HB Granda á staðnum. Er rætt var við Róbert Axelsson skipstjóra á heimasíðu HB Granda, var Venus komin að nýju á miðin en þangað er 30 tíma sigling frá Vopnafirði.

,,Við erum núna að veiðum austan við Færeyjar úti undir miðlínunni á milli Færeyja og Noregs. Það er töluverður fjöldi skipa á slóðinni en auk Íslendinganna eru hér Færeyingar og Rússar. Það er dauft yfir veiðunum núna en fyrir tveimur dögum var hér ágæt veiði. Svona er þetta þegar kolmunninn er annars vegar. Veiðin getur verið köflótt,“ segir Róbert.

Mjög góð kolmunnaveiði hefur verið allan maímánuð og voru skipin mest að veiðum í svokölluðu Ræsi suðvestur af Færeyjum.

,,Veiðin þar hefur dottið niður en það eru þó enn nokkur skip að reyna við kolmunnann vestan við Færeyjar. Hér austur frá virðist veiðin einnig vera að dragast upp í augnablikinu en það þýðir ekki að veiðin geti ekki tekið sig upp að nýju á morgun eða um helgina,“ segir Róbert en hann segir ástandið nú svipað því sem var fyrir réttu ári síðan.

,,Veiðin dróst saman í lok maí en var svo þokkaleg þegar við fórum út eftir sjómannadaginn,“ segir Róbert Axelsson.

Deila: