Ráðherra fylgir ráðgjöfinni

Deila:

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla í íslenskri fiskveiðilögsögu fyrir næsta fiskveiðiár og fylgir hún alfarið ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.

Í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar kemur fram að staða margra helstu nytjastofna er sterk og því samfara verða aflaheimildir fyrir ýsu og ufsa auknar verulega auk þess sem aflaheimildir fyrir þorsk og steinbít verða auknar nokkuð. Aftur á móti verður dregið úr aflaheimildum fyrir íslenska sumargotssíld og gullkarfa enda mældist ástand þessara stofna veikt.

„Sjálfbær nýting auðlinda hafsins byggð á vísindalegri ráðgjöf er lykilatriði í fiskveiðistjórnun okkar Íslendinga. Þessi stefna hefur skilað þeim árangri að margir af okkar helstu nytjastofnum eru að styrkjast. Um leið er þessi stefna ein meginforsenda þess að íslenskur sjávarútvegur er í fremstu röð. Til að viðhalda þeirri stöðu og sækja fram er mikilvægt að við treystum undirstöður vísindalegrar ráðgjafar með því að efla hafrannsóknir enn frekar líkt og kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar,“ Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Í meðfylgjandi töflu má sjá heildaraflamark fyrir einstakar tegundir. Þess ber að geta að aflamark fyrir mikilvæga uppsjávarstofna verður ákveðið á haustmánuðum.

 

Tegund Lestir
Blálanga 1.520
Djúpkarfi 13.012
Grálúða 13.271
Gullkarfi 39.240
Gulllax 7.603
Humar 0
Íslensk sumargotssíld 35.186
Keila 3.100
Langa 5.200
Langlúra 1.100
Litli karfi 1.500
Sandkoli 500
Skarkoli 7.132
Skrápflúra 0
Skötuselur 722
Steinbítur 9.020
Ufsi 79.092
Úthafsrækja 0
Ýsa 56.700
Þorskur 262.000
Þykkvalúra/Sólkoli 1.565

 

Deila: