Slysaslepping hjá Arnarlaxi

Deila:

Fiskistofa fékk tilkynningu frá Arnarlaxi a föstudag, um það að laxar hefðu sloppið úr sjókví fyrirtækisins í Tálknafirði. Göt fundust á kvínni (100×50 cm og 100×70 cm) sem skýrt getur að laxar hafi sloppið. Meðalþyngd fiska í kvínni er 3,5 kg. Samkvæmt upplýsingum Fiskistofu var viðbragðsáætlun fyrirtækisins strax virkjuð og reynt að veiða strokulaxa í nágrenni við kvínna.

Ekki er ljóst á þessari stundu hve margir laxar hafa sloppið. Eftirlitsmaður Fiskistofu hefur farið á vettvang og kannað aðstæður. Fiskistofa mun stjórna veiðum á strokufiskum næstu daga í samvinnu við Arnarlax. Fiskistofa mun greina nánar frá þessari slysasleppingu þegar meiri upplýsingar liggja fyrir um málið.

Fiskistofa hefur stjórnað veiðum vegna slysasleppingar úr sjókví Arnarlax í Tálknafirði síðustu daga, eða frá því tilkynning um atburðinn barst 6. júlí sl.

Fjórir laxar hafa nú veiðst í net við kvíarnar. Net verða áfram við kvíarnar svo lengi sem Fiskistofa telur þörf á því. Í famhaldi mun Fiskistofa kanna hvort laxar kunni að leita í ár í Tálknafirði og nágrenni.

 

Deila: