Breki byrjaður á veiðum

Deila:

„Við tókum tvö karfahöl í gærkvöld og í nótt. Þar með erum við komnir með skipið til veiða. Fyrstu sólarhringarnir fara annars að miklu leyti í að stilla af spil og vinnslukerfi, eins og við var búist,“ sagði Magnús Ríkarðsson, skipstjóri á Breka VE, í síðustu viku í samtali við heimasíðu Vinnslustöðvarinnar.

Áhöfnin á nýja VSV-togaranum er sem sagt komin á miðin til veiða. Sú stund var giska langþráð!

Breki byrjarðurBreka var siglt úr höfn á þriðjudaginn. Um borð voru rafvirki og einnig tæknimaður frá framleiðanda togspila skipsins til að taka þátt í að stilla búnaðinn og sjá til þess að vinnslukerfið gengi eins og til er stofnað.

Aðkomumönnunum var skilað í land á fimmtudags morgun og um borð kom Sverrir Haraldsson, sviðsstjóri bolfiskvinnslu VSV, áður en lagt var úr höfn nýjan leik. Hann ætlar að taka þátt í fyrsta alvöruveiðitúrnum sem ekki er vitað hve langur verður:

„Menn eru fyrst og fremst ánægðir með að vera komnir í gang. Gera má ráð fyrir að tæki og tól verði áfram stillt og prófuð í dag en með því var reiknað. Þetta lítur allt ágætlega út.“

  • Ljósmyndir: Ingólfur Ingvarsson, kokkur á Breka VE. Fleiri myndir er að sjá heimasíðunni vsv.is

 

Deila: