Egyptar og Tyrkir fá fyrsta makrílinn

Deila:

„Við höfum tekið við um 4.000 tonnum frá upphafi vertíðar 13. júlí, fínum makríl með lítilli átu. Meiningin er að hreinsa upp vinnslunni í dag og á morgun fyrir Þjóðhátíð. Skipin fara til veiða síðdegis á mánudag og við hefjum vinnslu á ný að morgni miðvikudags 8. ágúst.“

Sindri Viðarssonar, sviðsstjóri uppsjávarvinnslu Vinnslustöðvarinnar, er afar lukkulegur með upphaf makrílvertíðar. Söluhorfur eru líka góðar og fyrsti farmurinn er þegar á förum til Egyptalands og Tyrklands. Þar bíða kaupendur spenntir eftir fiskinum góða frá Eyjum á sína diska.

Makrílvertíðin markar enn ein þáttaskilin í starfsemi Vinnslustöðvarinnar. Nú voru teknar í gagnið hausa- og flökunarvélar í nýbyggingu samtengdri nýja uppsjávarfrystihúsinu. Í fyrsta sinn er unnið við aðstæður sem skapaðar hafa verið undanfarin ár með miklum og umfangsmiklum framkvæmdum og uppsetningu flókins tækjabúnaðar í vinnslusölum.

„Nú er unnið í umhverfi sem eftir hefur verið beðið lengi með eftirvæntingu. Breytingin er mikil því nærri lætur að við höfum tvöfaldað afköstin frá því sem áður var. Allt vinnsluferlið og meðhöndlun hráefnisins er eins og best verður á kosið.“

Öll skip Vinnslustöðvarinnar eru í höfn og þegar líður á morgundaginn dettur líka á dúnalogn í fiskvinnsluranni fyrirtækisins. Leikar æsast hins vegar að sama skapi í Herjólfsdal þegar hafist verður handa við að reisa Þjóðhátíðarþorpið með tilheyrandi innréttingum og aðbúnaði. Þjóðhátíð gengur í garð.

Deila: