Aflamarksfærslur til 15. september

Deila:

Fyrsta hálfa mánuð nýs fiskveiðiárs verður hægt að færa aflamark milli skipa bæði vegna fiskveiðiársins 2017/2018 og 2018/2019.

Fram til 15. september á það  við um rafræna millifærslukerfið þar sem hægt er að færa milli óskyldra aðila (sem og rafræna kerfið sem sumar útgerðir hafa aðgang að og gerir þeim fært að færa aflamark milli eigin skipa) að þau kerfi munu eingöngu nýtast til að færa aflamark sem tilheyrir fiskveiðiárinu 2017/2018.

Þurfi menn á þessu tímabili að færa aflamark innan nýja fiskveiðiársins 2018/2019 er nauðsynlegt að senda inn beiðni til Fiskistofu þar um með gamla laginu, þ.e. með  eyðublaði af vef Fiskistofu.

Tekið verður gjald fyrir aflamarksfærslur í samræmi við gjaldskrá stofnunarinnar.

Eftir 15. september verður síðan hægt að nýta rafrænu kerfin til að millifæra aflamark innan nýja fiskveiðiársins.

Fiskistofa vekur athygli á því að frá og með 1. febrúar 2019 verður eldra rafræna kerfið  sem leyfir millifærslur  milli eign skipa gegn árgjaldi lagt niður og þurfa útgerðir sem hafa nýtt sér það  kerfi þaðan í frá að nota nýja  rafræna millifærslukerfið.  Gjaldtaka þar verður fyrir hverja færslu.

 

Deila: