Kveðjustundin endaði í hópknúsi

Deila:

Gunnar Páll Hálfdánsson, framleiðslustjóri botnfiskssviðs Vinnslustöðvarinnar, hefur hætt störfum hjá fyrirtækinu og var kærlega kvaddur í fundarsalnum síðdegis.  Reyndar var hann svo ákaft faðmaður að skilnaði að kveðjustundin endaði með hópknúsi!

Gunnar Páll og Binni.

Gunnar Páll og Binni.

Gunnar Páll starfaði áður í sjávarútvegi á Flateyri og í Hrísey. Hann kom til Vinnslustöðvarinnar fyrir rúmlega fimm árum, fyrst sem vinnslustjóri en síðar sem framleiðslustjóri botnfiskssviðs.

Þorbjörg Rósa Jónsdóttir tekur tímabundið við verkefnum hans og verður yfirverkstjóri á botnfiskssviði VSV.

 

Deila: