Fiskeldi snéri byggðaþróun við

Deila:

Sigurður Ingi Jóhannsson, sveitarstjórnar- og samgönguráðherra skrifaði á facebook síðu sína í gær að um 300 störf beintengd fiskeldi fyrir vestan. Hann telur fiskeldi sé mikilvæg atvinnugrein og hafi jákvæð áhrif á byggðaþróun bæði á Vestfjörðum og Austfjörðum.

Færslan í heild er svohljóðandi:

Framtil 2012 var viðvarandi fólksfækkun á sunnanverðum Vestfjörðum en þá snérist þróunin við vegna uppbyggingar fiskeldis. Í nýlegri samantekt Byggðastofnunar kemur fram að um 160-170 bein störf séu hjá fyrirtækjunum i fiskeldinu og um 150 óbein störf. Það þýðir að yfir 300 störf eru beintengd fiskeldinu fyrir vestan og uppbyggingu þess. Þá snerist íbúaþróun við á norðanverðum Vestfjörðum á síðasta ári m.a vegna uppbyggingar fiskeldis (fjölgun um 150 manns) Þá eru tugir starfa í Ölfusi/Þorlákshöfn sem tengjast starfsemi fyrirtækjanna fyrir vestan. Fiskeldið er líka að hafa mjög jákvæð áhrif á byggða-íbúaþróun á sunnanverðum Austfjörðum. Það er mikilvægt að allir átti sig á raunstöðunni og mikilvægi þess að atvinna sé til staðar. Í öðrum löndum höfum við séð nákvæmlega sömu þróun – þ.e. að svæði sem áður máttu þola fólksfækkun hafa nú snúið við með uppbyggingu fiskeldis á þeim svæðum. – Allir eru sammála um mikilvægi þess að byggja fiskeldið upp á varkárinn og sjálfbæran hátt – ekki síst innan greinarinnar sjálfrar. Það er heldur ekkert óeðlilegt að á einstökum atvinnugreinum séu skiptar skoðanir en það verður að gera þá kröfu til þeirra sem um málin fjalla að þeir fari ekki með rangt mál – jafnvel staðlausa stafi. Mikilvægi fiskeldis í uppbyggingu byggðanna fyrir vestan og austan er staðreynd og ætti ekki að vera ágreiningsmál. Það má því vera öllum ljóst að finna þarf skynsamlegar lausnir á núverandi stöðu.

 

Deila: