Vegið að æru Sjómannafélags Íslands

Deila:

Sjómannafélag Íslands hefur sent frá sér eftirfarandi samþykkt vegna boðað framboðs Heiðveigar Maríu Einarsdóttur til formennsku í félaginu:

„Á aðalfundi Sjómannafélags Íslands 28. desember 2017 voru lagðar fram nokkrar tillögur til lagabreytinga sem höfðu verið bornar undir Trúnaðarmannaráð, sem samþykkti að leggja þær fyrir aðalfund. Þá var lögð fram tillaga á aðalfundinum um breytingu á 16. grein laga um kjörgengi. Tillagan var svohljóðandi: „Kjörgengir eru þeir félagar sem greitt hafa í félagið sl. þrjú ár.“  Tillögurnar voru lagðar fyrir aðalfund sem samþykkti þær með öllum greiddum atkvæðum.

Undanfarna daga hefur Sjómannafélag Íslands legið undir ámæli frá Heiðveigu Maríu Einarsdóttur sjómanni vegna  þessara lagabreytinga og hefur hún sakað forystu Sjómannafélagins um að falsa lagabreytingu um kjörgengi til stjórnar Sjómannafélagsins til þess að koma í veg fyrir framboð sitt en Heiðveg María hefur lýst áhuga á því að bjóða sig fram til formanns í félaginu.

Á visir.is síðasta fimmtudag og viðtali á Bylgjunni síðasta föstudag fór Heiðveig fram með órökstuddum staðhæfingum um að félagið hafi „brotið gegn félagsmönnum“. Aðspurð í útvarpsviðtalinu viðurkennir Heiðveig það hins vegar að umræddar lagabreytingar hafi verið bornar upp og samþykktar á aðalfundi félagsins. Með öðrum orðum að farið hafi verið að lögum félagsins.

Stjórn Sjómannafélags Íslands harmar hinar alvarlegu ásakanir í garð félagsins. Sjómannafélagið hefur alla tíð unnið af heillindum að hagsmunum og kjaramálum sjómanna. Innan raða þess er starfsfólk með áratugareynslu af málefnum sjómanna. Með ásökunum sínum á hendur starfsmönnum Sjómannafélags Íslands vegur Heiðveig María að æru félagsins og allra þeirra sem koma að stjórn og rekstri félagsins.

 

Deila: