Enn berst síldin að landi

Deila:

Enn veiða Síldarvinnsluskipin norsk-íslensku síldina. Beitir NK er á landleið með rúmlega 900 tonn og er væntanlegur fljótlega eftir hádegið. Tómas Kárason skipstjóri segir að aflinn hafi fengist í fjórum holum.

„Við vorum að veiðum suðaustarlega í Smugunni um 340 mílur frá Norðfirði. Það gafst heldur lítill tími til veiða vegna veðurs. Það brældi og gerði í reynd arfavitlaust veður þannig að það var ekkert annað að gera en að halda í land,“ segir Tómas á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Börkur NK er nú að veiðum í færeysku lögsögunni.

Bjarni Ólafsson AK kom til Neskaupstaðar í nótt eftir að hafa verið í slipp á Akureyri. Runólfur Runólfsson skipstjóri segir að farið hafi fram svonefnd 20 ára skoðun á skipinu. „Vélin var tekin upp, skipið þykktarmælt, farið yfir rafkerfið og fleira. Síðan var skrokkurinn málaður og skipið er voða fínt núna,“ segir Runólfur.
Bjarni Ólafsson mun væntanlega halda til síldveiða.

Á myndinni er Beitir NK á landleið í brælunni. Ljósm. Helgi Freyr Ólason.

 

Deila: