Frábrugðin vertíð

Deila:

Á nýliðinni vertíð barst fyrsti makríllinn til Neskaupstaðar hinn 19. júlí þegar Vilhelm Þorsteinsson EA kom með 500 tonn af frystum afla til löndunar. Makrílvinnsla í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar hófst hins vegar ekki fyrr en 1. ágúst þegar Beitir NK kom úr sinni fyrstu veiðiferð á makrílvertíðinni samkvæmt frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Þessi vertíð hófst mun seinna en vertíðir síðustu ára og þurfti meira að hafa fyrir því að ná makrílaflanum. Þegar Vilhelm Þorsteinsson kom með fyrsta makrílinn til löndunar sagði Guðmundur Jónsson skipstjóri að makríllinn væri mun seinna á ferðinni en undanfarin ár enda væri sjórinn við landið heldur kaldari en hann hefði verið um þetta leyti árs síðustu árin. Í lok vertíðarinnar var Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á Berki, spurður hvað hefði helst einkennt makrílvertíðina. Hann sagði að megineinkenni vertíðarinnar væru hve seint hún hefði hafist og að minna hefði verið af makríl við landið en undanfarin ár. Taldi hann víst að meginástæðan fyrir því hve lítið makríllinn dvaldi við landið væri sú að það hefði verið mun minna af átu en undanfarin ár. Það hafi vorað seint í sjónum á gönguleið makrílsins og því hefði átumyndun verið lítil.

Veiðarnar þróuðust þannig þegar á leið að þær fóru að miklu leyti fram í Síldarsmugunni og veiðin var misjöfn frá einum tíma til annars. Stundum gekk vel að veiða en stundum þurfti að hafa fyrir því að leita að fiskinum sem gat verið tímafrekt.

Vertíðinni hjá skipunum sem lönduðu makríl í Neskaupstað lauk um síðastliðin mánaðamót en afli Síldarvinnsluskipanna var sem hér segir:

Beitir NK                        6.644 tonn

Börkur NK                     6.134 tonn

Bjarni Ólafsson AK       3.983 tonn

Þá landaði Vilhelm Þorsteinsson EA 4.500 tonnum af frystum makríl í frystigeymslur Síldarvinnslunnar á vertíðinni  og Hákon EA landaði um 3.500 tonnum.

Á myndinni eru Beitir NK og Bjarni Ólafsson AK að makrílveiðum í sumar.
Ljósm. Helgi Freyr Ólason

 

Deila: