Strandveiðikerfið verði þróað áfram

Deila:

Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda  samþykkir að strandveiðikerfið verði þróað áfram til að bæta afkomu útgerða strandveiðibáta. Strax á næsta ári verði tryggðir að lágmarki 12 dagar í mánuði í fjóra mánuði. Jafnframt að landið verði eitt veiðisvæði og að hægt verði að segja sig frá strandveiðum og fá aftur almennt veiðileyfi hvenær sem er á strandveiðitímabilinu. Fundurinn krefst þess að sérveiðigjald á strandveiðar (50.000,-) verði strax fellt niður.

Aðalfundurinn  leggur til að makrílveiðar verði gefnar frjálsar og reglugerð sem gefin var út fyrir fjórum árum verði felld úr gildi, heildarúthlutun verði 16%.

Þá er lagt til að leigupottur makríls (ráðherrapottur) verði festur í sessi og að ónýttar makrílveiðiheimildir umfram leyfilega tilfærslu milli ára verði færðar sem viðbót við leigupott næstu makrílvertíðar.

 

Deila: