Veiðar á humri í gildrur verði heimilaðar

Deila:

Aðalfundur LS leggur til að humarveiðar í gildrur verði heimilaðar samhliða þróun á veiðum, vinnslu og markaðssetningu grjótkrabba.  Fundurinn skorar á stjórnvöld að huga alvarlega að skaðsemi trollveiða á humri á lífríki sjávar.  „Út frá rannsóknum á skaðsemi trollveiða liggur það í augum uppi að ekki verði hægt að bjóða náttúrunni upp á slíkar aðfarir til lengdar.  Humarveiðar í gildrur lágmarkar áhrif á lífríki hafsins og eykur nýtingu auðlindarinnar til muna,“ segir í samþykkt fundarins.

Í greinargerð með samþykktinni segir svo: „Grjótkrabbi er ný nytjategund innan fiskveiðilögsögu Íslands og finnst hann nú í miklu magni í Faxaflóa.  Ljóst er að löng og kostnaðarsöm þróunarvinna er framundan í veiðum, vinnslu og markaðssetningu á grjótkrabba áður en nýting á honum verði arðbær.  Ómögulegt er fyrir smábátaeigendur að standa straum af kostnaði við slíka þróunarvinnu. Með því að heimila humarveiðar í gildrur upp að vissu marki samhliða veiðum á grjótkrabba væri hægt að dekka hluta þess kostnaðar og hvetja útgerðarmenn til frekari þróunarvinnu við nýtingu á grjótkrabba, sem í framtíðinni yrðu sjálfbærar og umhverfisvænar veiðar.“

Deila: