Formenn stéttarfélaga fordæma Sjómannafélagið

Deila:

Formenn VR, Eflingar stéttarfélags, Framsýnar stéttarfélags og Verkalýðs Akraness fordæma ólýðræðisleg vinnubrögð trúnaðarmannaráðs Sjómannafélags Íslands og brottrekstur Heiðveigar Maríu Einarsdóttur úr félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu stéttarfélaganna, sem birt er á ruv.is.

Fjórir félagsmenn Sjómannafélagsins óskuðu á dögunum skriflega eftir því að stjórn eða trúnaðarmannaráð myndu víkja Heiðveigu úr félaginu og var sú tillaga samþykkt og henni tilkynnt um það á miðvikudaginn. Heiðveig hefur að undanförnu gagnrýnt stjórn félagsins harðlega. Hún hafði gefið það út að hún ætlaði að gefa kost á sér í næsta stjórnarkjöri og leiða lista sem lagður yrði fram á aðalfundi í desember. Hún var rekin úr félaginu þar sem trúnaðarmannaráð telur hana hafa unnið gegn hagsmunum félagsins.

Í tilkynningunni kemur fram að stéttarfélög eigi að vera opin öllum sem starfa á því starfssvæði sem kjarasamningar viðkomandi stéttarfélags ná yfir. „Félagsaðildinni fylgja mikilvæg réttindi sem eru hluti af velferð launafólks á vinnumarkaði og hún tryggir vernd félagsmanna í samskiptum sínum við atvinnurekendur. Þetta kemur skýrt fram á heimasíðu Sjómannafélags Íslands þar sem sérstaklega er fjallað dagpeninga og styrki til félagsmanna, orlofskosti þeirra og aðgang að lögfræðiþjónustu svo fáein dæmi séu tekin. Stéttarfélagi er undir engum kringumstæðum heimilt að reka félagsmann úr félaginu og svipta hann þar með þessum réttindum,“ segir meðal annars.

Krafa um greiðslu félagsgjalda í þrjú ár ólögmætar hömlur á frelsi

Jafnframt kemur fram að aðild að stéttarfélagi feli í sér rétt til lýðræðislegrar þátttöku og áhrifa í félaginu með málfrelsi, tillögurétti, atkvæðisrétti og kjörgengi. „Krafa um greiðslu félagsgjalda í þrjú ár til þess að öðlast kjörgengi innan félagsins felur augljóslega í sér ólögmætar hömlur á frelsi og réttindi félagsmanna og slíkt þekkist ekki innan íslenskrar verkalýðshreyfingar.“

Í tilkynningunni kemur fram að skoðanaágreiningur og gagnrýni á störf félagsins geti undir engum kringumstæðum flokkast undir brot sem kalli á brottrekstur. „Alvarleg brot félagsmanna gegn félaginu eins og t.d. ef hann vinnur með atvinnurekendum gegn hagsmunum þess geta í alvarlegustu undantekningar tilvikum leitt til þess að hömlur verði settar á atkvæðisrétt og kjörgengi. Skoðanaágreiningur og gagnrýni á störf félagsins eru ekki slík brot heldur skýrt merki um lýðræðislega þátttöku í starfsemi félagsins,“ segir í tilkynningu formannanna.

Skora á Sjómannafélagið að virða lög og reglur

Þá er leitt að því líkur að skoðanir Heiðveigar á starfsemi Sjómannafélags Íslands og ákvörðun hennar um að gefa kost á sér til formanns í félaginu sé ástæða fyrir þessum hörðu viðbrögðum af hálfu trúnaðarmannaráðs félagsins. „Í því efni hefur hún einungis nýtt sér félagsbundin réttindi sín og stjórnarskrárvarið málfrelsi  sem augljóslega hefur komið við kaunin á forystu félagsins. Þess vegna er mikilvægt að félagsmenn Sjómannafélags Íslands bregðist við samþykkt félagsins og mótmæli henni harðlega.“

„Verði þessi gjörningur ekki afturkallaður er Sjómannafélag Íslands að skrifa nýjan kafla í sögu verkalýðshreyfingarinnar sem ekki er sómi af. Formenn  VR, Eflingar stéttarfélags, Framsýnar stéttarfélags og Verkalýðsfélags Akraness skora því á forystu Sjómannafélags Íslands að virða lög og reglur sem gilda almennt um starfsemi stéttarfélaga og kjörgengi félagsmanna á vegum verkalýðshreyfingarinnar og afturkalla ákvörðun sína um brottrekstur Heiðveigar Maríu Einarsdóttur þegar í stað.“

Á myndinni er rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson, en sjómenn á skipinu eru í Sjómannafélagi Íslands.

 

Deila: