Þróun vélar til vinnslu á sæbjúgum verðlaunuð

Deila:

Svifaldan verðlaunagripurinn fyrir Framúrstefnuhugmynd Sjávarútvegsráðstefnunnar 2018 var veitt í áttunda sinn í gær, en markmiðið er að efla umræður og hvetja til nýrrar hugsunar með framsæknum og frumlegum hugmyndum. Svifaldan er gefin af TM, en jafnframt var veitt verðlaunafé og viðurkenningar til þeirra sem standa að þremur bestu hugmyndunum.

 

Davíð Freyr Jónsson.

Davíð Freyr Jónsson, Gunnar Þór Gunnarsson, Kári Ólafsson hlutu fyrstu verðlaun í samkeppninni Framúrstefnuhugmynd Sjávarútvegsráðstefnunnar 2018.  Aurora Seafood ehf. í samstarfi við Curio ehf vinna  nú að þróun sæbjúgnavinnsluvélar.  Á Íslandi hafa sæbjúgu verið unnin síðan árið 2003 og allar götur síðan hafa framleiðendur reynt að hanna og smíða vélar til að skera sæbjúgun.  Það hefur reynst þrautinni þyngra, þar sem sæbjúgu hafa mjög breytilega lögun.Viðlíka vélar og búnaður til vinnslu á sæbjúgum eða öðrum hryggleysingjum hefur ekki verið smíðaður áður, en þessi vél myndi gera fullvinnslu afurða á vestrænum atvinnusvæðum gerlega og arðbæra. Með vélinni færast framleiðendur nær neytendum vörunnar og möguleikar á framleiðslu ýmissa afurða s.s. hreinsuð heil sæbjúgu, kjöt og skinnframleiðsla verður samkeppnishæf við ódýrt erlent vinnuafl. Með tilkomu þessa búnaðar er Ísland að merkja sér áhugaverða hillu á markaði afurða sæbjúgna og ekki síst markaði vélbúnaðar fyrir vinnslu á sæbjúgum í heiminum.

Einnig fengu tvær aðrar hugmyndir viðurkenningu.

Caligo Sapo Fjölþokukerfi en að henni standa Gunnar Brynjólfsson, B.G.B TECH og Baldur Halldórsson, Vatnslausnir ehf. Sótthreinsun í fiskvinnslu með þokuúðun hefur verið vel þekkt í um 25 til 30 ár. Með þessari hugmynd er aðferðin tekin enn lengra, þar sem sápu er einnig úðað á vélar og tæki með sömu aðferð og með sama tækinu CALIGO SAPO.

Ekko toghlerar en að henni stendur Smári Jósfatsson, Ný toghlerahönnun ehf.   Með nýjum vænglaga Ekkó toghlerum verður tæknibylting sem skilar margháttuðum ávinningi umfram hefðbundna toghlera.

Nánari upplýsingar um Framúrstefnuhugmyndir Sjávarútvegsráðstefnunnar 2018 er að finna í ráðstefnuhefti Sjávarútvegsráðstefnunnar sem hægt er að sækja á vef félagsins:  http://sjavarutvegsradstefnan.is/

 

Deila: