Breki VE og Páll Pálsson ÍS nefndir sem fyrirmyndarskip í Hörpu

Deila:

Eldsneytisnotkun með tilheyrandi afleiðingum fyrir umhverfi og andrúmsloft bara eykst og eykst á Íslandi, NEMA í sjávarútvegi. Þar hefur hún dregist saman um 43% frá 1990 til 2016. Þetta kom fram á Sjávarútvegsráðstefnunni 2018 og í því samhengi brá fyrirlesari upp mynd af Breka VE fyrir að „veiða á við tvo en eyða olíu á við einn“! Frá þessu er greint á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar. Þar segir ennfremur:

„Benedikt Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Samtaka fyrirtækja í sjávarútveg, flutti erindi í málstofu um umhverfismál sjávarútvegsins á Sjávarútvegsráðstefnunni í Hörpu í dag. Hann brá upp tölum og upplýsingum sem sýndu ljóslega að sjávarútvegur landsmanna er í algjörri sérstöðu á Íslandi. Því er þannig spáð að eldsneytisnotkun í greininni dragist saman um 134.000 tonn á ári frá 1990 til 2030. Það jafngildir samdrætti upp á 54%!

Stjórnmálamenn og skoðanahönnuðir í fjölmiðlakerfinu, berja sér gjarnan á brjóst fyrir að vera miklir umhverfissinnar og náttúrunnar menn í hvívetna, en passa vel hafa ekki hátt um forystu sjávarútvegsins í því að draga úr eldsneytisnotkun svo um munar – á borði en ekki bara í orði! Það má nefnilega helst ekki segja neitt jákvætt um atvinnugreinina og þess vegna er heillaráð að þegja, þykjast hafa gleymt eða ekkert hafa heyrt um málið.“

 

Deila: