Marel kaupir eigin bréf

Deila:

Marel hf. Keypti í 49. viku. 851.112 eigin hluti að kaupverði 336.543.870 kr. eins og nánar er tilgreint hér á eftir:

 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir  Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
5.12.2018 09:37:58 140.500 402,00 56.481.000
5.12.2018 09:40:35 143.204 402,00 57.568.008
6.12.2018 09:31:27 100.000 395,25 39.525.000
6.12.2018 09:37:41 100.000 395,25 39.525.000
6.12.2018 09:55:49 83.704 395,25 33.084.006
7.12.2018 12:07:04 283.704 389,00 110.360.856
Samtals   851.112   336.543.870

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. desember 2018 og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Marel hf., þann 22. nóvember 2018.

Marel hf. átti 6.690.550 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 7.541.662 eigin hluti eða sem nemur 1,10% af útgefnum hlutum í félaginu.

Marel hf. hefur keypt samtals 851.112 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,12% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 336.543.870 kr.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 17.305.940 hlutum eða sem nemur 2,5% af útgefnum hlutum í félaginu. Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 4. desember 2018 til og með 5. mars 2019.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

 

Deila: