Loðna í þorskinum í Víkurálnum

Deila:

Allir ísfisktogarar HB Granda eru nú komnir til hafnar vegna þess hlés sem gert verður á veiðum og vinnslu vegna jólahátíðarinnar. Akurey AK kom síðastur togaranna til hafnar í Reykjavík í gærmorgun með rúmlega 130 tonna afla og segist skipstjórinn, Eiríkur Jónsson, í samtali á heimasíðu HB Granda, vera þokkalega ánægður með veiðiferðina.

,,Það var reyndar bræla á miðunum þegar við komum út en svo fengum við ágætt veður í nokkurn tíma. Það var ágætis þorskveiði í Víkurálnum og þar fengum við stóran og góðan þorsk. Fiskurinn var fullur af loðnu og það veit á gott,“ segir Eiríkur en þegar þorskveiðin minnkaði í Víkurálnum var haldið áfram norður eftir Vestfjarðamiðum þar sem aflinn var ufsi og karfi.

,,Þriðjudagurinn datt alveg út vegna haugabrælu en áður en við héldum heim fengum við ágæta þorskveiði út af Þverálshorni.“

Eiríkur segir að heilt yfir hafi þetta verið gott ár.

,,Við erum farnir að sækja mun meira á Vestfjarðamið en við gerðum og aflinn hefur verið jafn og góður,“ segir Eiríkur Jónsson.

Í sama streng tekur Friðleifur Einarsson, skipstjóri, á Engey RE. Hann segir að aukin þorskveiði ísfisktogara HB Granda kalli á að farið sé eftir þorskinum norður á Vestfjarðamið stóran hluta ársins.

,,Þetta hefur verið gott ár. Jafn og góður afli en tíðarfarið, ekki síst upp á síðkastið, hefði gjarnan mátt vera betra,“ segir Friðleifur Einarsson.

Deila: