Marel gefur ungbarnavog

Deila:

Þeir Valdimar Gunnar Sigurðsson og Óskar Veigu Óskarsson frá Marel færðu fæðingardeild Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað fullkomna ungbarnavog að gjöf í dag. Marel hefur gefið fæðingardeildum á landinu á þriðja tug slíkra voga á undanförnum árum og leysa þær af hólmi eldri og ónákvæmari vogir. Nýja vogin vinnur með tveggja gramma nákvæmni og tekur fullkomið tillit til hreyfinga sem hugsanlega eru á barninu sem verið er að vigta. Þá veitir Marel eilífðarábyrgð á vigtinni og mun sinna öllum þáttum viðhalds hennar samkvæmt frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

 

Frá afheningu ungbarnavogarinnar. Talið frá vinstri:
Óskar Veigu Óskarsson frá Marel, Valdimar Gunnar
Sigurðsson frá Marel, Hrafnhildur Lóa Guðmundsdóttir,
ljósmóðir, Jónína Salný Guðmundsdóttir ljósmóðir, Ingibjörg Birgisdóttir ljósmóðir, Þórhalla Ágústsdóttir deildarstjóri sjúkradeildar, Sigríður Kristinsdóttir sviðstjóri
hjúkrunar HSA, Nína Hrönn Gunnarsdóttir
framkvæmdastjóri hjúkrunar HSA.
Ljósm. Smári Geirsson

Þeir Valdimar Gunnar og Óskar segja að það sé svo sannarlega ánægjulegt að heimsækja fæðingardeildir og færa þeim vigtar að gjöf. Þá sé einnig afar gott að heyra að vigtarnar komi í góðar þarfir því það skipti mjög miklu máli að geta vigtað ungbörn af mikilli nákvæmni. Þá kom fram hjá þeim að sjávarútvegsfyrirtækin í Fjarðabyggð séu á meðal tryggustu viðskiptavina Marel og því sé ánægjulegt að geta látið gott af sér leiða fyrir samfélagið.

Við afhendingu vigtarinnar voru staddir fulltrúar frá Síldarvinnslunni og Eskju en það var einmitt Hlynur Ársælsson rekstrarstjóri uppsjávarvinnslunnar hjá Eskju sem benti Marel á að þörf væri á að endurnýja ungbarnavigt á fæðingardeildinni í Neskaupstað. Hlynur og Agla Heiður kona hans hafa notið þjónustu deildarinnar á árunum 2013, 2015 og 2017 og hann þekkir því vel til.

Ingibjörg Birgisdóttir ljósmóðir segir að Marel eigi miklar þakkir skildar fyrir höfðinglega gjöf. „Það ar alltaf ánægjulegt að taka á móti gjöf eins og þessari og hún kemur til með að nýtast vel. Það getur skipt miklu máli að hafa nákvæma fæðingarvigt svo unnt sé að fylgjast vel með hve barn léttist mikið fyrstu dagana eftir fæðingu. Ef börn þyngjast ekki sem skyldi þarf að vigta þau bæði fyrir og eftir gjafir svo unnt sé að fylgjast með hvort þau fá nægju sína. Gamla vigtin okkar vigtaði einungis með tíu gramma nákvæmni þannig að þessi nýja vigt er miklu betri og kemur sér afar vel,“ segir Ingibjörg.

 

Deila: