Dr. João Correia flytur erindi

Deila:

Dr. João Correia mun halda erindi í fyrirlestrarsal Hafrannsóknastofnunar fimmtudaginn 3. janúar kl. 16:30. Hann er stofnandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins Flying Sharks sem sérhæfir sig í flutningi á sjávarlífverum, allt frá hákörlum til smærri lífvera. Hann er einnig höfundur bókarinnar Sex, sharks & rock‘n‘roll og á sér ýmis áhugamál sem mörgum þættu áhugaverð.

Í þessu létta erindi mun Dr. Correia fjalla um mörg þau ævintýri sem á daga hans hafa drifið síðustu 20 árin, í starfi sem sjávarlíffræðingur og öðrum áhugaverðum hliðarstörfum.

Erindið verður flutt á ensku. Öll velkomin.

 

Deila: