Vilhelm Már ráðinn forstjóri Eimskips
Stjórn Eimskipafélags Íslands hefur ráðið Vilhelm Má Þorsteinsson í starf forstjóra félagsins. Hann hefur störf 24. janúar næstkomandi. Vilhelm hefur verið framkvæmdastjóri fyrirtækja og fjárfestasviðs Íslandsbanka hf. undanfarin ár.
Starf forstjóra var auglýst í byrjun desember á síðasta ári og naut Eimskip ráðgjafar Hagvangs við ráðninguna, segir í tilkynningu.
Vilhelm hefur starfað hjá Íslandsbanka og Glitni í tuttugu ár og sinnt þar fjölbreyttum og krefjandi verkefnum, lengst af sem stjórnandi og setið í framkvæmdastjórn bankans. Í störfum sínum hefur hann öðlast víðtæka þekkingu og reynslu á fjármálamörkuðum og í fyrirtækjarekstri, sem mun nýtast vel í nýju starfi hjá Eimskip, segir í tilkynningu.
„Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt til að leiða Eimskip, sem er öflugt fyrirtæki í traustum rekstri. Þar bætist ég í góðan hóp starfsfólks og stjórnenda sem hafa mikla reynslu af flutningastarfsemi og ég hlakka til að starfa með. “ segir verðandi forstjóri Eimskips, Vilhelm Már Þorsteinsson meðal annars.
Stjórnarformaður Eimskips, Baldvin Þorsteinsson segir að við ráðningu Vilhelms fái Eimskipafélagið öflugan stjórnanda sem sýnt hefur að hann kunni að leiða saman fólk til að vinna að settu marki og ná árangri.
Starf forstjóra var auglýst í byrjun desember á síðasta ári og naut Eimskip ráðgjafar Hagvangs við ráðninguna. Einhugur var í stjórn Eimskipafélagsins um ráðninguna og væntir stjórn félagsins mikils af Vilhelm í starfi.