Vertíðin er alveg að bresta á

Deila:

Frystitogarinn Örfirisey RE er nú að veiðum í norskri lögsögu í Barentshafi en að sögn skipstjórans, Ævars Jóhannessonar, var togarinn byrjaður veiðar 6. janúar sl. eftir fjögurra sólarhringa siglingu frá Íslandi. Veiðin byrjaði vel við Bjarnarey en síðan var óveður á svæðinu en það gekk svo niður.
,,Veðráttan hefur gert okkur lífið leitt síðustu dagana og við höfum hrakist undan veðri yfir stórt svæði og víða þreifað fyrir okkur,“ sagði Ævar en er heimasíða HB Granda ræddi við hann í síðustu viku var Örfirisey ásamt fjórum öðrum skipum, grænlenskum, breskum og tveimur færeyskum togurum, norðaustur á svokölluðum Tor Iversen banka og veðurhorfur fyrir næstu daga voru þá góðar.
,,Ég hef fulla trú á því að vertíðin sé alveg að bresta á. Þorskurinn er stór og fallegur og kominn með hrogn og framundan er örugglega góður veiðitími,“ segir Ævar.
Áhöfnin á Örfirisey og Ævar skipstjóri þekkja vel til veiða í Barentshafi en að þessu sinni verður skipið bara í norsku lögsögunni. Kvóti Örfiriseyjar er um 1.200 tonn af þorski upp úr sjó og ráðgert er að úthaldið verði 40 dagar.

 

Deila: